Í gær (12. jan.) frumsýndi Toyota keppnisbíl sinn fyrir 2007, sem mun bera nafnið TF 107.
Bíllinn var frumsýndur í Köln í Þýskalandi, þar sem Formúlu 1 aðstaða Toyota liðsins er staðsett.
Að sögn háttsettra yfirmanna liðsins vilja þeir sjá fyrsta sigur liðsins í keppni landaðan í ár, en þó hafa þær raddir einnig heyrst áður, sérstaklega fyrir nýliðið tímabil, en sigrarnir láta bíða eftir sér enn.
Heimildir:
* Mbl.is - Formúla 1. Takmark Toyota að vinna jómfrúarsigur á vertíðinni. Sótt 13. jan. 2007 af slóðinni http://www.mbl.is/mm/sport/formula/frett.html?nid=1246866.
* GrandPrix.com - F1 News. Toyota aiming for victory (again). Sótt 13. janúar 2007 af slóðinni http://www.grandprix.com/ns/ns17940.html.
Mynd:
StatsF1.com. Sótt 13. jan. 2007 af slóðinni http://www.statsf1.com/cars/photo/193/1172.jpg.