Michael Schumacher kvaddur Þýski ökumaðurinn Michael Schumacher veitti viðtöku sérstakri viðurkenningu á verðlaunaafhendingu FIA föstudaginn 8. des. Um er að ræða sérhannaðan gullpening, en hann fær fær Schumacher fyrir framlag sitt til íþróttarinnar. Voru það Bernie Ecclestone og Max Mosley sem afhentu verðlaunin.