Mér þykir leitt að þú skulir vera búinn að dæma mig sem reiða manneskju án þess að vita eitt né neitt um mig. Ég svaraði því sem þú sagðir því ef maður tjáir sig á netinu verður maður að búast við svari og þá má maður ekkert bregðast illa við.
Mér finnst samt eitt forvitnilegt og það er hvernig þú biðst afsökunar reyndar fannst mér þú ekki þurfa þessi þarna því ég var aðeins að reyna að „rökræða“ málin og skapa umræðu. Aftur á móti finn ég ekki neina afsökun í „þið eruð alltaf jafn reiðir menn…“ og svona svar er auðvita þannig að maður verður að svara því. Þá baðstu afsökunar og allt gott og blessað með það fyrir utan að þú fórst að blanda inn uppnefni, ég er ekki alveg að átta mig á því þar sem ég sá ekkert uppnefni á einum eða neinum, ég er ekki að mistúlka orð þín í gríð og erg svo var það eitthvað sem ég átti að skilja sem uppnefni?
Ég ætla ekki að vera fetta fingur út í allt sem þú segir og nenni ekki að nöldra þrátt fyrir að vera kallaður svertingi og svona.
En kommon getum við ekki rætt F1 á skinsömum nótum án þess að fara út af sporinu og rífast og fara í hártog?
Kv. Fusion