Er nú hvorki Schumacher eða Ferrari aðdáandi, en ég hef heyrt af flestum sem að tengdu þetta áður sem eina og óaðskiljanlega heild, að þeir muni gerast silfurlitaðir í stað rauða litsins.
Ég hef alltaf verið Schumacher maður og er enn og held því með honum og Mercedes núna. Var Ferrari maður en ég alveg þoli ekki hrokagikkinn hann Alonso. Verður gaman að sjá hvernig sá gamli mun standa sig, held hann hafi engu gleymt
Ég held með Schuma en ekki með Mercedes.. heldur ekki ferrari.. Ætli maður verði ekki Renault í vetur og elti manninn sem ég hef haldið með síðastliðin 2 ár, Kubica..
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..