Hvernig fannst ykkur bæði keppnin og nýja brautin.
Mér fannst keppnin sjálf vera hálf litlaus og leiðinleg og brautin koma mér nokkuð á óvart hvað hún var tilbreytingalaus og niðurgrafin eitthvað. Vantar allt aksjón í hana.
Þetta var álíka skemmtilegt og að horfa á hrísgrjón sjóða. Nei veistu ég held að grjónin séu meira spennandi en þetta mót. Þetta var dautt! Stein dautt!
Það fór ekki einu sinni allt í kleinu eins og mætur maður myndi segja. Þetta var stein gelt.
Og Ferrari vélar í rannsókn! Ekkert bilað svo bila þær í hrönnum… Vélin hjá Hamilton fór í rannsókn bara af því að hann vann tvö mót í röð! Ferrari í rannsókn!
Alltaf leiðinlegt að sjá hvað Ferrari kemst upp með mikið án þess að það sé tekið á því. Menn furða sig á því hvernig lið getur unnið ár eftir ár, en að vera með dómnefndinni í liði gefur vissulegt forskot þegar öðrum liðum tekst að búa til samkeppnishæfan bíl.
„It is not worth an intelligent man's time to be in the majority. By definition, there are already enough people to do that.“
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..