Því miður er lítið hægt að gera í þessu, það er ekkert betra sem bíður upp á að hafa svona spár.
Og ég veit ekki, en allavega fyrir mína parta skipta þessi stig nákvæmlega eingu máli. Er ég að fá virðingu fyrir að vera ofurhugi á Formúlu 1? Held ég sé frekar álitinn sem lúði ef e-h er.
Ef ég fengi að ráða ætti að vera búið að sparka þessu stigakerfi út fyrir mörgum árum.
Mér er hreint alveg sama hvort ég fæ stig eða ekki. Ég var eitt sinn með markmið að trjóna á toppnum á stigalistanum hér, ég er búinn að ná því og raunar hef ég bara ekki mikinn áhuga á því að fá stig fyrir mína hluti.
Ef ég á að segja alveg eins og er hef ég mikið pælt í að láta nústilla userinn minn og hefjast handa við huga án stiga. Þá væri kannski orðið þess virði að skrifa greinar, kannanir og myndir ef ég hefði e-h til að vinna að með þessum stigum. En eftir að ég komst á þennan lista (neðsta sætið dugði) hafiði ég ekkert þannig séð til að vinna að. Þá fór ég að leiðast þessi stig.