Jacques VilleneuveÞá er Villeneuve á þeirri skoðun að Massa eigi eftir að standa sig betur en Räikkönen í ár og að Massa muni blómstra á góðum bíl.
Kimi er ofmetinn sem alhliða ökumaður, því hann hefur ekki áhuga á neinu öðru en að stökkva um borð í bílnum og aka hratt. Alhliða ökumaður eyðir miklum tíma með hönnuðum og vélvirkjum til að bæta hvert einasta smáatriði við þróun bílsins. Að sumu leyti er ef til vill fínt að vera með þannig ökumann, en maður spyr sig hvort hann sé tilbúinn að helga sig íþróttinni.
http://www.visir.is/article/20070219/IDROTTIR04/70219087
Hvað finnst mönnum um þetta mál?
Sjálfur er ég á þeirri skoðun að Räikkönen muni ekki koma til með að koma í stað Schumachers, en hann á eftir að standa sig vel í ár, jafnvel þótt hann endi ekki sem heimsmeistari.
Kveðja,