Miðað við þann akstur sem hann sýndi í dag þá ætti hann allaveganna 2 góð ár eftir. Maðurinn er nú ekki nema 37 ára gamall.
Meginrök hans við ákvörðunina er fjölskyldan enda er hægt að ýminda sér það að þetta er ekkert venjulegt fjölskyldulíf þarna hjá þessum köppum.
Alesi var nú orðinn 43 ára þegar hann hætti í F1, en hann fór ekki langt þó hann hafi lagt það stýrið á hilluna, hann skipti bara um starfsferil og fór í DTM. Schumi á kanski ekki eftir að gera það en hann á samt sem áður eftir að starfa við F1 meira.