Jordan á leið upp aftur?
Jordan hefur tryggt sér verksmiðjusamning við Honda á næsta ári. Þetta þýðir stóreflingu liðsins þar sem Jordan hefur verið með vélar frá Mugen sem er eins konar dótturfyrirtæki Honda og alls ekki eins sterkar vélar að manna mati. BAR verður áfram með samning við Honda og eru samningar liðanna sambærilegir. Þetta þýðir að Honda lætur í té vélar ókeypis, tæknimenn og hönnuði til þess að aðstoða Jordan við þróun á vélinni. Í fyrra var skortur á vélarafli það sem hélt aftur af Jordan. Ef þeir geta byggt á þessu og aukið áreiðanleika bílsins (gírkassi, bremsur) verður næsta ár mjög gott fyrir þá.