Smá villa hjá þér: Focke Wulf fyrirtækið þýska er allt annað en Fokker. Hið síðarnefnda var stofnað af Hollendingnum Anthony Fokker. Hann hannaði nokkrar af frægustu flugvélum Þjóðverja í WWI, en vann fyrir þá bara vegna þess að þeir buðu betur en Bandamenn (Holland var hlutlaust og ekki hernumið í WWI).
Fokker fyrirtækið hannaði orustuvélar á millistríðsárunum, sem stóðu sig sæmilega í byrjun WWII í þjónustu hollenska flughersins og fleiri hlutlausra landa. Nenni ekki að fletta því upp hvað Fokker-menn gerðu undir hernáminu, en það var í öllu falli ekki ýkja merkilegt, og þeir höfðu ekkert með Focke Wulf að gera.
_______________________