Ég verð því miður að leiðrétta þig í getu og tilgangs þess sem stealth þotur er og var ætlað að gera. Það að þota sé húðuð með málingu og hönnuð með þeim eiginleika að þær séu ekki sjáanlegar á radsjá í kannski 200 mílna fjarlægð þýðir ekki að venjulegur radar geti ekki séð hana í 100 eða 50 mílna fjarlægð! Það að þota sé stealth þýðir einfaldlega að þær séu illsjáanlegar en með engu mótu ekki sjáanlega með radar! Fræðin eru flókin og ekki auðskilinnn hvað varðar þessa svokallaða stealth tækni. En til einföldunar þá var hún gerð og er enn gerð einungis til að gefa stealth þotunni forskot á að sjá óvininn áður en hann sér hana. kv.:)