PIC eru dýrmætari en DUAL, Twin engine eru dýrmætari en single engine. Það eru einhverjir skólar á austurströndinni sem kenna sultukrukku (JAR) ásamt FAA. Gott ef að Flight Safety kennir ekki JAR líka.
Sjálfur safnaði ég tímum á vesturströndinni nánar tiltekið í LA. Engin Þrumuveður þar og svo er ekki bara eintóm flatneskja eins og á austurströndinni. Byrjaði hjá skóla sem heitir Air Desert Pacific sem saug feitann þannig að ég fór til American Aviation sem voru að gera góða hluti. Við fórum 4 félagarnir til LA. Tveir þeirra höfðu farið áður til Flórída að fljúga og sögðu þeir að vesturströndin væri skemmtilegri. Sjálfur hef ég lítið flogið þar. Við flugum reyndar þvert yfir Bandaríkin frá LA niður á Key West Florída og til baka.
Það sem þú verður að pæla í er:
* Hvernig nám JAR eða FAA
* Hvað kosta tímarnir
* Skaffar skólinn húsnæði.
* Er húsnæðið nálægt skólanum, þarna eru engar smá vegalengdir.
* Skaffar skólinn annars bílferðir.
* Hvernig er veðurfar á staðnum á þeim tíma sem þú ætlar.
* Hversu auðvelt er að fá vélar, getur verið pína.
* Hversu mikið endurgreiðir skólinn af eldsneytinu, venj. $2,5/G.
* Þarftu að borga fyrir Safety Pilot.
* Þú verður að fá meðmæli frá einhverjum sem hefur verið þarna.
Kíktu annars inn á www.pprune.com og póstaðu spurningu um skóla í Questions eða Wannabes. Þú færð pottþétt svör.
Hikaðu ekki við að meila á mig ef þú hefur fleiri spurningar.