Já, það er málfrelsi og jú, maður má víst gagnrýna, en málið er bara það að þetta mun ekkert breytast þótt að einhver sé með leiðindi hérna og því er bara best að sleppa þeim. Ég er sjálfur ekkert allt of hrifin af því hvernig mál voru leyst hér fyrir nokkru, en svona er þetta bara. Ég hef tekið þá stefnu að halda frekar friðinn hér heldur en að vera með leiðindi og mig langar að biðja þig um að gera hið sama. Það er mikið betra að þetta sé vefur þar sem við getum komið og rætt það sem okkur langar að ræða og lesið það sem okkur langar að lesa, í stað þess að “þurfa” alltaf að vera með leiðindi og skítkast. Þú ræður því svo sem sjálfur hvaða stefnu þú tekur, en ef það er ekki í átt að friði og hamingju, vona ég að þú stefnir héðan út.
Kveðja,
deTrix