Þar sem ég er/var einn af stjórnendum hérna, þá verð ég víst að standa fyrir svörum, þar sem enginn annar tekur upp hanskann fyrir þennan vef.
Stjórnendur á þessu áhugamáli hafa engann aðgang að persónulegum upplýsingum um notendur. Við sjáum bara það sama og þið hinir. Þeir sem hafa aðgang eru að ég best veit, vefstjóri eða aðrir rekstraraðilar þessa vefs.
Sikorky gekk allt of langt. Ég held að flestir séu sammála um það. Það eru mörk á því hvað er hægt að láta frá sér í skjóli nafnleyndar, og ég trúi varla að nokkur sé ósammála því. Ég hins vegar veit ekkert hvaðan upplýsingarnar um hann komu, en skv því semhér var ritað, þá fékk hann bréf heim til sín, frá FÍ, þannig að einhverstaðar fékk skólinn upplýsingar um hann. Og ónefndur stjórnandi hérna hafði ekki upplýsingar um hann, hvort sem það var hann sem tengdist málinum á einhvern hátt.
Um annað sem hefur verið eytt hérna, þá er ég sammála flestu sem hefur verið ritað um það.
Ég er annars sáttur við vefstjóra að hrista aðeins upp í þessu, enda orðinn leiður á því að reyna að svara fyrir afhverju einhverju var eytt, út af því að yfirleitt hef ég ekki vitað meira um það en þið.