Eins og stendur er stjórn FÍE, sem hefur undirbúið flugið hingað til, frekar lítið starfandi.
Ég fékk símtal frá flugmanni fyrir helgi, þar sem einn stjórnarmanna hafði bent á mig sem verðandi stjórnarmann og þar með höfuðskipuleggjanda. Ég vil því taka fram að ég er ekki að skipuleggja sólstöðuflug, enda kemst ég engan veginn með.
Ég mæli með að þeir sem áhuga hafa á flugi rotti sig saman og ákveði annað hvort föstudags- eða laugardagskvöld.
Einnig vil ég benda fólki á að verið er að skipuleggja hópflug á vestfirði þessa sömu helgi, og hvet ég alla til að drífa sig þangað.
Kristbjörn