Þeir skoða flest allt, þvagsýnið er t.d til að skoða lyfjanotkun og ef það kemur upp eitthvað óvenjulegt á blóðprufu þá ertu sendur í mjög ýtarlega blóðprufu.
Mikið ábyrgðarleysi og hreint út sagt heimska að blanda saman flugi og ólöglegum lyfjum, því þú berð ábyrgð á fleirum en sjálfum þér og það er skylda flugmanna að gera allt sem þeir geta til að tryggja öryggi flugs.