Mennt er máttur og verður það líklega seint hrakið en….
Ég get ekki látið framhjá mér fara að leiðrétta þig aðeins þó mér sé það mjög á móti skapi að slíkt sé gert á þessari síðu.
Mentaður segist þú vera en ég geri ráð fyrir að þú sért menntaður.
" Ættli það dugi til að komast í skólan"
Ætli það dugi ekki til að komast í skólann ef þú hefur náð þér í þann einingafjölda sem á er minnst hér að neðan?
Hafðu samband við þau hjá Flugskóla Íslands og fáðu upplýsingarnar frá fyrstu hendi, það virkar alltaf best.
Gangi þér vel,
Helico.
Bætt við 6. janúar 2007 - 23:49
Ég ætlaði að hafa setninguna svona: Ætli það dugi ekki til að komast í skólann ef þú hefur náð þér í þann einingafjölda sem á er minnst hér að ofan?