Flugkoma um næstu helgi
Um næstu helgi verður flugkoma Flugmálafélags Íslands. Þar mæta allir með sínar fluggræjur og fjölskyldur og tjalda inn á Helluflugvelli.
Flugkoman verður frá föstudagssíðdegi til sunnudags. Samkomutjald verður á staðnum, en það verður líklega óþarfi þar sem veðurspáin fyrir helgina er mjög góð á Hellu. Það er því rétt að stefna helgarútilegunni á Hellu.
Reiknað er með öllum greinum Flugmálafélagsins: Vélflug, svifflug, Þyrlur, fis, svifvængir og svifdrekar, fallhlífarstökk, módel og einnig verður Þristurinn á staðnum.
Hægt verður að skoða allar græjur og jafnvel fá stuttan flugtúr í ýmsum græjum.
Fismenn stefna að því að bjóða öðrum flugmönnum og áhugamönnum prufuflug.
Sjáumst á Hellu um helgina.
Stjórn Flugmálafélagsins
(svifflug.com)