persónulega myndi ég alltaf frekar vilja Cessnu…. en þá helst Citation eða Conquest, myndi meira segja láta mig hafa C-421 Golden Eagle ; )
Hehe en það var nú líklega ekki það sem þú áttir við, frekar eitthvað svona sambærilegt. En er ekki frekar C-182 sambærilegri við Cirrus en C-172? Held að C-182 sé frekar sambærilegri í verði og vigt og mótor eða hvað? Og það er hægt að fá nýja C-182 með Garmin 1000 glass cockpit pakkanum og þá er maður farinn að tala um verulega öfluga vél fyrir þá sem vilja vera á einshreyfils. Meira að segja hægt að fá svona TKS fluid de-icing.