Flugfélagið Ernir er flott fyrirtæki og ég yrði ekki hissa ef þeir færu út í að byggja sér eitt stykki flugskýli yfir flotann.
Það er ekkert skrítið að við sjáum ekki vélarnar þeirra því þeir eru stöðugt í loftinu og mikið að gera bæði hér innanlands sem utan. Svo eru þær líka svo snöggar í hæð að ef maður er ekki sérstaklega að fylgjast með þeim í flugtaki þá missir maður bara af þeim. Einn tveir og hviss bang, farnir!
Gaman að sjá hvað Örnum gengur vel.
Kveðja,
Helico.