Líklegast er bara verið er að taka vélina úr notkun sökum aldurs. Að vísu er þessi vél ekki nema um 24 ára gömul (margar eldri vélar eru enn í notkun), en það er fleira sem getur spilað inn í, s.s. notkun, fjöldi flugferða, o.s.frv.
Annars þá sé ég nú dálítið á eftir þessari vél því þetta var fyrsta Júmbóþotan sem ég flaug með fyrir réttum 4 árum síðan (10. ágúst 2000).