Ég heyrði í gærkvöldi að talan væri komin í 18 manns, og að það ætti eftir að fylla í 3-4 stöður til viðbótar, og í þokkabót væru tveir hugsaðir sem varamenn svo það er ómögulegt að segja hver lokatalan verður. Vonandi 22. Flugfélagið þarf víst að ráða 7-10 segja sögurnar. Hvað ætli Bláfugl, Íslandsflug, Atlanta, Flugfélag Vestmannaeyja og Mýflug þurfi marga fyrir sumarið? Sjaldan hafa líkurnar verið svona góðar að fá vinnu.
Óskandi að Flugskóli Íslands hefði MCC ódýrara og notaði simmann allar nætur líka, þá myndi þetta fyrst ganga eitthvað hjá þeim sem eru að reyna að afla þeirra réttinda. Það er alveg ófyrirgefanlegt að hirða af mönnum næstum 300 þúsund og sjá svo fram á að klára ekki menn fyrr en t.d. í lok mars eða álíka því það er of seint fyrir flugfélögin, held ég.