jamm… þetta var ég búinn að sjá á síðu Flugfélags Íslands:
Flugfélag Íslands óskar eftir að ráða flugstjóra til framtíðarstarfa á Fairchild Metro, með heimahöfn á Akureyri
Hæfniskröfur:
3000 fartímar eða 2500 fartímar þar af 1500 í fjölstjórnarflugvél
Vera handhafar flugskírteina I flokks eða handhafar flugskírteina III flokks með bóklegt ATP
Blindflugsréttindi í gildi
Læknisskoðun I flokks í gildi
Stúdentspróf eða sambærileg menntun
Góð íslensku- og enskukunnátta
Háttvísi og lipurð í mannlegum samskipum
Faglegur metnaður og áhugi á að takast á við krefjandi verkefni
Eftirfarandi gögn skulu fylgja með umsókn:
Afrit af flugmannsskírteini ásamt áritunum og heilbrigðisvottorði
Afrit af prófskírteini ásamt einkunnum fyrir bóklegt flugnám
Afrit af stúdentsprófsskírteini eða öðrum sambærilegum prófskírteinum ásamt einkunnum
Nýtt sakavottorð
Afrit af skráningu síðustu 100 klst. í flugdagbók
Eftirfarandi sundurliðun flugtíma:
Heildarflugtími, blindflugstími (við blindflugsskilyrði), flugtími sem
flugstjóri, flugtími á fjölhreyfla flugvélar og flugtími sem flugkennari
Umsóknarfrestur: Skriflegar umsóknir berist starfsmannastjóra Flugfélags Íslands fyrir 21. október 2003. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu félagsins við Reykjavíkurflugvöll og á heimasíðu félagsins www.flugfelag.is, eldri umsóknir óskast endurnýjaðar.
deTrix