Nei því miður þekki ég engan persónulega. Hins vegar ef þú leitar hér á huga, getur þú fundið einn eða tvo sem hafa verið þar. Einhverntíman heyrði ég að Flugleiðir hafi þjálfað sína flugmenn þar. Í hverju er ég ekki viss, hugsanlega MCC eða álíka hlutum.
Ég var með stefnuna setta á þennan skóla eða BAE en málið er að þetta er einfaldlega of mikill peningur m.v. það sem þú getur fengið hér heima. Þetta er vitanlega betri menntun að því leiti að hún er samhangandi og af mun stærri skala.
En ég ákvað ( þrátt fyrir að vera kominn með lán fyrir næstum öllu) að taka ekki þennan rosa séns.
Vextir af svona láni er á bilinu 70-90 þúsund. Það er engin leið að kljúfa svoleiðis lán án þess að vera í fullri vinnu og búa heima. Þá er lítill tími eftir til þess að fljúga.
Ef þú ert að spá í þessu, hugsaðu þig vandlega um. Lestu allt sem þú finnur á Pprune.org og ekki láta glampann af heimasíðu OAT blinda þig. Það eru aðrar leiðir. Þú gætir til dæmis tekið bóklega hlutann úti ( um 700 þús og n.b. LÍN lánar ekki fyrir því) og skellt þér í verklegt og í nauðsynlegar áritanir hér heima.
kv.
Proxus