Ég hef tekið eftir því að í könnunum hérna og á fleiri stöðum á huga er aldrei einn hlutlaus möguleiki. T.d. með núverandi könnunina hérna þá er gert ráð fyrir því að þú sért með flugmannsréttindi. Þessu þarf að breyta. ;)

kveðja, Guðgeir.
könnununni er eingöngu ætlað að ná til þeirra sem eru með flugmannsréttindi og því er engin ástæða til að hafa hlutlausan möguleika, enda myndi sá möguleiki rugla niðurstöður könnunar á því hvort FLUGMENN tali við veðurfræðing fyrir flug eða ekki.
Ég er að segja að sumir kjósa bara eitthvað ef að enginn möguleiki sem að þeim líkar er til staðar. Þess vegna má bæta við möguleika sem að hljóðar einhvernvegin svona: “Ég er ekki með flugmannsréttindi”.

kveðja, Guðgeir.
könnununni er eingöngu ætlað að ná til þeirra sem eru með flugmannsréttindi og því er engin ástæða til að hafa hlutlausan möguleika, enda myndi sá möguleiki rugla niðurstöður könnunar á því hvort FLUGMENN tali við veðurfræðing fyrir flug eða ekki.
Ég held að það rugli könnunina frekar að vera ekki með hlutlausan möguleika, en eins og Dahmer segir að þá eru menn sem kjósa bara til að kjósa - það ruglar því niðurstöðuna.
Flestir kjósa bara til að kjósa. Hví ekki að hafa möguleika sem að passar þeim? T.d. þeim sem að ekki eru með flugmannsréttindi.

kveðja, Guðgeir.
Þessi könnun var samin fyrir flugmenn að svara og ef menn kjósa bara til að kjósa þá er það þeirra vandamál. En ég hef reyndar trú á að Íslendingar seu ekki svo barnalegir ÉG HEF TRÚ Á ÍSLENDUNGUM. Þess vegna þarf ekki að hafa valkost í könnunum sem kemur könnuninni ekkert við.
Ef þið eruð að leita eftir nákvæmum niðurstöðum á hvort flugmenn tali við veðurfræðing fyrir flug þá er best að tala við Gallup. Annars gæti það lengt könnunina mjög ef það þirfti að hafa möguleika fyrir alla. Þessi vefur er ætlaður flugmönnum og jú kanski áhugamönnum og þeir sem hafa ekki flugpróf þurfa varla að tala við veðurfræðing þannig þeir ættu nú bara að láta þessa könnun vera!! Ekki bara koma og tuða um að vanti fyrir þá! lærið bara að fljúga ef þið viljið endilega kjósa á þessu!
Alltaf þarftu að vera með sömu hortugheitin kristján. Þetta svæði huga er fyrir _flugmenn_ og _flugáhugamenn_ og hefur alltaf verið það. Varðandi tilgang þessa korks til að byrja með þá nenni ég ekki að tuða þetta í ykkur lengur þar sem að þið virðist vera of miklir með ykkur þar sem að þið eruð flugmenn, allavega þú kristjan til að geta átt í málefnalegum umræðum við próflausan áhugamann.

kveðja, Guðgeir.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..