Ég er sammála mörgu sem sagt er á þessari slóð, þ.e. það sem ég hef heyrt og kynnt mér um Atlanta.
Þeir verða að gera aðeins betur við sína flugmenn, a.m.k. ef þeir vilja fá mig ;-) t.d. nógu há laun til þess að ég geti borgað lánin mín(þá er ég EKKI að tala um 2,5M 767-viðbótarlán) OG haldið fjölskyldunni uppi, starfsöryggi, líka til að geta borgað lánin mín og til að halda fjölskyldunni saman.
Þeir ættu að fara að verða nógu stórir til að geta boðið fleirum fasta ráðningu, ég tala nú ekki um að eiga efni á því að þjálfa sitt starfsfólk, það liggur við að þeir ætlist til þess að menn fari frá öðrum félugum (öfug formerki við því sem þeir sjálfir þurftu að þola).