Hóhó;
Þetta segir á mbl.is í dag:
Í ár er liðin öld frá því Wright-bræður fóru í fyrstu flugferðina árið 1903. Þetta afrek unnu þeir í Kitty Hawk í Norður- Karólínufylki í Bandaríkjunum. Fyrsta flugs félagið, félag áhugamanna um flugmál, mun minnast þessa flugafreks með ýmsum hætti á þessu ári. Fyrsti viðburðurinn verður útsýnisflug með breiðþotu frá flugfélaginu Atlanta næstkomandi föstudag.
Fram kemur í tilkynningu frá félaginu að farið verði frá Keflavíkurflugvelli og stefnt inn á hálendi Íslands þar sem flugið verður lækkað til að farþegar njóti útsýnisins. Flugvélin rúmar 460 farþega en aðeins verður selt í 330 sæti þannig að sem flestir njóti útsýnisins.
Flugstjóri verður Arngrímur Jóhannson, einn af eigendum Atlanta og Ómar Ragnarsson fréttamaður mun lýsa landslaginu. Auk þeirra verða fimm trúðar með í ferðinni til að bregða á leik við farþega. Allir þátttakendur mun síðan fá sérstakt heiðurskjal til staðfestingar um að hafa verið í þessari afmælisflugferð flugsins.
Fyrsta flugs félagið og Flugmálafélag Íslands standa fyrir fluginu en samstarfsaðilar eru Atlanta og Vífilfell. Hægt er að að panta sæti næstu daga.
—
Þetta gæti nú verið helvíti gaman, finnst ykkur ekki? Ef einhver veit hvar hægt er að nálgast upplýsingar um verð og hvar á að panta, endilega póstið því hingað. Ætli þetta verði eitthvað über-dýrt?
kveðja,
með skírteini #4398