Já nú fer hver að verða síðastur að versla sér hlutabréf í Pharmaco en þau hafa varla hætt að hækka í heil þrjú ár. Frá áramótum hefur orðið meira en 60% hækkun og bréf sem keypt voru fyrir 3 árum hafa nærrum því 3 faldast. Ég keypti til að mynda fyrir 3 árum hef náttúrulega grætt vel á því þannig að ég ákvað að kaupa meira þegar ég sá þróunina á bréfunum frá því um áramótin. Nú ég keypti fyrir tæpum 2 vikum á genginu 24,7 og nú er gengið meira en 27.

Ég mæli eindregið með Pharmaco, þeir sem hafa efasemdir geta náttúrulega bara skoðað ársuppgjör fyrirtækisins á heimasíðu þess.