Ég er því miður ósammála þér.
Mín skoðun er sú að X hafi verið toppurinn, character developmentið hjá Tidusi var brilliant og söguþráðurinn tilfinningaþrungin og góður. XII er líka í uppáhaldi hjá mér því hann var fyrsti FF leikurinn sem ég kláraði, og Balthier gerir hann meira awesome. Það gæti verið út af því að ég vil geta stjórnað hreyfingum persónanna þegar ég er að berjast en mér fannst samt söguþráðurinn góður og persónurnar, fyrir utan Penelo, góðar.
VI og VII eru líka geðveikt góðir, þó sá síðar nefndi er allt of overrated. Persónulega fannst mér Cloud vera aðeins of emo og einu persónurnar sem stóðu uppúr hjá mér voru Cid, Cloud og Sephiroth. Mér fannst Arieth bara pirrandi og gat ekki beðið eftir að losna við hana, en Tifa var samt fín.
VI var náttúrulega bara hrein snilld, Kefka var snillingur og persónurnar voru margar áhugaverðar.
Ég er ekki að skjóta á neitt sem þú segir, ég er bara að segja mína skoðun á málinu.