Ja.. Þú þarft helst að hafa 2 kalla með quickening í partyinu þínu og nota chain með öðrum þeirra. Þegar það byrjar þá ættirðu að sjá tvær línur fyrir ofan tíma barið þarna niðri og þær verða annað hvort hvítar eða svona ‘greyed-out’. Ef hinn kallinn hefur svona hvíta línu, þá geturu valið hana með kassa þríhyrning eða x og þá notar hann sitt quickening. Ef að báðir ná að nota quickening í svona comboi þá færðu mjög mikinn bónus miðað við þegar þeir eru bara einir að nota það, held að ég hafi fengið 700 dmg þegar ég gerði þettta fyrst og fannst það nokkuð mikið.
Svo geturðu haldið áfram ef að ein af línunum er ‘mist charge’. Þegar kallarnir þínir eru búnir að nota quickening, þá geta þeir ekki notað það aftur strax, nema að þú notir mist charge, þá geturðu haldið áfram með combo. Svo færðu líka extra dmg bónus, inferno, ef þú nærð að fá a.m.k. 3 combo.
Núna þegar ég er búinn að æfa mig soldið í þessu þá hef ég náð að gera 9 combo og ná 10.000 dmg í einu svona höggi :)
mundu bara að kallarnir sem nota quickening missa allt mana.