Jæja. Ég ákvað að kíkja á GameSpy í dag.
Þar stóð stórum stöfum:

Release date: April 2005. Ég var nú mjög ánægður með það.
Hvort að þetta sé satt veit ég hins vegar ekki.

Svo las ég mér örlítið til um leikinn. Þar er sagt að bardagakerfi leiksins sé í stíl við .hack leikina frá Bandai.
Ég brast í grát. .hack leikirnir eru ömurlegustu leikir sem ég hef á ævi minni spilað. Frekar myndi ég spila Pacman 24/7. Þessir leikir eru svo hræðilegir þegar kemur að bardagasysteminu að það er ekki fyndið. Meira í stíl við hundlélega útgáfu af Kingdom Hearts en FF.

Ef að bardagakerfið er eins og í .hack mun ég ekki kaupa þennan leik nema út á söguþráðinn. Spurning hvort maður endist út allan leikinn til þess að sjá endann.