Jamm. Nobuo Uematsu er núna að hætta hjá Square-Enix, svo við getum sagt “bless og takk fyrir alla frábæru tónlistina”. Hann hefur verið sífellt minna og minna tengdur tónlist Square-Enix leikja og var það, að sögn Gamespot, til þess að undirbúa brottför hans frá fyrirtækinu. Final Fantasy XII mun koma til með að hafa eitt lag eftir meistarann, en hann ætlar að stofna sitt eigið fyrirtæki, Smile Please. Hann mun halda áfram að semja tónlist fyrir tölvuleiki, halda tónleika, ásamt því að eyða meiri tíma í hljómsveit sína, The Black Mages, en önnur breiðskífa hljómsveitarinnar kemur út í desember, ég get sjálfur ekki beðið eftir að heyra hana.