Ég er að endurspila VII núna og ég var kominn í Midgar Zolom áðan. Ég Save-aði og ákvað að hjóla bara beint í hann án neinnar mikillar þjálfunar (bara að prófa) ég komst ekki mjög langt á sandinum áður en að hann náði mér. Ég náði að vinna hann! Í sigurvímu minni hélt ég áleiðis í átt að Mythril Mines… nei, hann kom aftur! Og byrjaði á því að gera Beta sem skilaði mér reyndar réttum megin við sandinn ;) en þá mundi ég að ég hafði gleymt að læra L4 Suicide og Chocbuckle hinum megin við sandinn… D'oh! Ég Save-aði í nýtt Slot og náði í Enemy Skill-in 2 og drullaðist svo grautfúll á Chocobo yfir sandinn og áleiðis í gegnum Mythril Mines.

LPFAN