Jæja minns er að fara að leggja uppí vikuferðalega til Mallorca.
Ég fer í hádeginu í dag, flogið verður til Alicante og tek ég annað flug þaðan og til Palma þar sem ég mun eyða dvölinni. Ég er svo ótrúlega heppin að eiga systir sem er flugfreyja hjá spænsku flugfélagi.. og já ég fæ sem sé ferðina ókeypis. Og auðvitað fría gistingu því ég mun dvelja heima hjá henni.. þannig maður þarf einungis að halda sér uppi (en ekki það að ég er varla að hafa efni á því..!)
Ég talaði við systir mína í gær og það var víst 35°c stiga hiti í hádeginu þarna úti! Næstum ólíft.. þannig best að pakka einungis pilsum og stuttbuxum og stuttermabolum..
Jæja ég skal reyna að komast á netið úti og reyna að tjá mig eitthvað meira um ferðina þar :)
Adíós!!<br><br>—-\LadyGay//—-