Jæja, mig langaði bara að deila með ykkur að ég er að fara til Brasilíu 3. ágúst og verð þar í 11-12 mánuði en ég er að fara sem skiptinemi á vegum AFS.

Ég fékk bréf áðan þar sem ég var látin vita að ég væri komin með fjölskyldu, einstæðan föður með son á sama aldri og ég, 89'.

Ég hlakka alveg sjúklega til, og sérstaklega til að fara í flugvél fyrst til Bandaríkjana, svo Sao Palo(ekki alveg viss hvernig) og svo á staðin sem ég mun búa á, Vila Velha sem mér sýnist á myndum sem ég finn á google vera einhver geðveikur strandbær!

Jáh, langaði bara að deila þessu með ykkur!;)