hmmm ég fer allavega til Danmerkur en var að vonast til þess að ferðast líka eitthvað innanlands, þá eru aðalstaðirnir þessi fjölskyldusetur sem standa á Þingeyri, Grenivík og Barðsnesi (á móti Neskaupstað) en svo væri gaman að komast eitthvað í þórsmörk og sumarbústaðurinn verður pottþétt mikið notaður eins og alltaf :D
Well ég fer til Mallorca 10.ágúst. Svo er ekki enn alveg víst hvort ég fari til Palestínu í haust. En ég mun örugglega lítið ferðast innanlands í sumar, nema fara í bústaðinn á Flúðum reglulega.
Ég fer út til mömmu og pabba 4.júlí (þau búa í Luxembourg) verð þar í nokkra daga, fer svo með þeim til Berlín að horfa á úrslitaleikinn í HM.. og kíkja á eina af íbúðunum okkar.. förum svo aftur heim til lúx, og keyrum svo til Köben að hjálpa systur minni að flytja í nýju íbúðina sína… ekkert gífurlega spennandi, en hey, þetta er þó eitthvað, og mamma og pabbi borga brúsann…
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..