Ég er gott sem tívolíadrenalínfíkill :)
T.d. fór ég fyrir 2árum til Benidorm og þaðan var dagsferð til Port Aventura (skemmtigaður með fullt af tækjum). Þar var einn rússíbani sem hét Dragon Kane (held að það sé skrifað svona) og ég og bróðir minn fórum 15x í hann (hefðum farið oftar ef það hefði ekki byrjað að rigna 2klst áður en við fórum :)
Svo fór ég síðasta sumar með handboltaliði sem ég æfði með til Svíþjóðar, nánar tiltekið Partille sem er rétt hjá Gautaborg. Einn daginn fórum við í tívolíið þar og þar var einn rússíbani sem ég fór 18x í !!!
Jamm ég veit ég er psycho, en þetta er feitt fun :)
Reyndar er maður orðinn alveg tilfinningalaus í svona síðustu 10 skiptin í rússíbönunum en maður bara verður að halda áfram.
Allavega, allir sem vita um góða rússíbana í Evrópu plz share with us.<br><br>
- Steini -