ég er með eina:
Ég var úti á ítalíu, þurfti sárlega að komast á klóið. Svo fann ég eitt almenningsklósett en það þurfti að borga sig inná það - þetta var eins og einhver geimstöð að utan, maður setti pening í eins og í sjálfsala. Svo opnuðust geimdyrnar með hvissi og ég steig inn. Þegar ég hafði gert mínar þarfir þá sá e´g að það var enginn klósettpappír þarna en samt sá ég helling af rauðum tökkum í kringum mig. Ég ýtti á einn og opnuðust þá ekki dyrnar með helvítis hvissinu, ég á klósettinu og hellingur af ferðamönnum fyrir utan! vá ég held ég hafi aldrei skammast mín svona mikið!