Þegar stórt er spurt…New York býður upp á næstum allt sem ferðalangur getur hugsað sér en þú ættir ekki að missa af:
1. Heimsókn í Central Park. Finndu þér t.d. aðila sem býður upp á hjólreiðaferð um Central Park því þannig sérðu mest af garðinum.
2. Empire State Building. Besta útsýnið í New York
3. Rústirnar af Twin Towers. Sorglegasti staðurinn í New York
4. Chinatown. Þér líður eins og þú sért komin til Asíu
5. Williamsburg í Brooklyn. Heitasta svæðið í New York þessa dagana. Þar sem mestar líkur eru á því að rekast á stjörnur morgundagsins.
6. Washington square. Miðpunktur Village og alltaf fullt af fólki.
7. Blue Man Group - frábær sýning
Það er ekkert til sem heitir ódýrt hótel á Manhattan en t.d. Metropolitan er gott hótel á mjög góðum stað
http://www.metropolitanhotelnyc.com/skoðaðu endilga city search vefinn til þess að fá hugmydir nú eða náðu þér í góða NYC leiðsögubók