Ég er að fara til portúgal í sumar, nánar tiltekið algarve héraðið á svona týpískan túristastað til að reyna að fá vinnu, kannski smá óskhyggja í gangi en jæja.
Var bara að spá hvort einhver vissi um ódýrt húsnæði til að leigja í 2-3 mánuði nálægt albufeira eða næsta nágrenni? Ef einhver hefur gert þetta sama áður væri gott að fá svona helstu punkta og helstu mistök sem grænir íslendingar gera vegna sólstings =)