Stelpa fór til Spánar og hitti einhvern Spánverja sem henni fannst algjör draumur. Þau skemmtu sér hið besta en þegar hún kemur heim fattar hún að hún er ólétt. Hún ákvað að eignast barnið en hafði engin tök á að láta gæjann vita. Svo þegar krakkinn er þriggja ára og hún útí búð að versla í matinn, hvern sér hún í búðinni nema Spánverjann sinn. Kom nefnilega í ljós að hann var alls ekki Spánverji heldur Íslendingur að þykjast vera Spánverji til að næla í íslenskar stelpur ;)