Gott fólk!!

ég var bara að velta því fyrir mér hvort að einhver hérna hafi farið til Brasilíu?? Og hvernig honum leist á landið…??

Ég var einmitt að koma þaðan þar sem ég dvaldi í eitt ár. Ég verð bara að segja að Brasilía er magnaðasta land í heimi! Algjör snilld að vera þar. Landið er svo ofboðslega stórt að það er eins og að vera kominn í allt annað land, ef ekki aðra heimsálfu, hvort þú ert í norður Brasilíu eða suður. Í norður Brasilíu getur það líkst því að vera kominn til fátækustu Afríku en í suður getur það verið eins og að koma til Evrópu!

Ég mæli með því fyrir alla að heimsækja þetta dásamlega land!!