Fullorðinn eða ekki þá finnst mér alveg eðlilegt að það sé bara eitt gjald á hvert sæti og krakkar taka alveg jafn mikið pláss í flugvélinni.
Hins vegar, ertu búinn að tékka á hvað kostar ef þið takið Flugleiði eða Iceland express til Köben og annað þaðan eða ef þið farið í gegnum London?
Á Flugleiðavefnum er þetta frá 145 þús. til London fyrir 4 en á Iceland Express er með frá 80 þús. sama (frá 20 þús. á mann). Á
http://www.cheapflights.co.uk/ eru ódýr flug frá London og hægt að finna fargjöld til Þýskalands og til baka fyrir 100UKP eða 12.700 kr. á mann. Náttúrulega dýrt ef þið þurfið að gista í London en ef þið getið fundið flug sem tengist vel, þá ætti þetta allt að smella.