Í gær var ég inná skemmtistað og eitthvað fífl ákvað að skvetta bjór útum allt og slatti fór á símann minn sem fór síðan í algjört fokk. Takkar hættu að virka og ef ég ætlaði í t.d. inboxið þá kom eins og ég hafi ýtt á eitthvað allt annað eins og t.d. turn off takkann (þá kemur upp key lock, silent, turn off og fleira)og eitthvað.
Það eina sem virkar ekki núna er back, c takkinn og ég get ekki unlockað honum. -_- Þarf alltaf að taka batteríið úr og setja það aftur í til þess að geta kveikt á honum og skoðað sms sem ég fékk og svona.
Er hægt að laga þetta somehow? Eða þarf ég að splæsa í nýjan síma?