Þannig er mál með vexti að fyrir þónokkru vilaði síminn minn (Nokia 3510i).
Hann las ekki SIM kortið, (Please insert SIM card), og sama hvað ég hreinsaði hann og skipti um kort þá virkaði ekkert.
Það leið langur tími en á endanum fór ég með símann í viðgerð (Hann var enn í ábyrgð) og þegar ég fékk hann til baka þá virkaði hann í alveg einn heilann dag…
Uss snillingar hjá Símanum en málið er ég vildi spurja hvort að einhver annar hafi lent í sama vandamáli með þennan og/eða annan Nokia síma.
Og ef svo er getur hann þá kannski sagt mér hvort það hafi verið hægt að laga það.

Kv. Klassi