Ef þú ættir 3310, ca. 1 árs… og þér byðist að kaupa jafngamlan síma nema bara 3410 á 5000 kall… myndirðu selja þinn og kaupa þennan á 5000 kall? Hvað er betra við 3410 en 3310???? Er gott verð að kaupa 3410 á 5000???? Hvað mynduð þið gera????
Þú veist ekki einu sinni hvað er betra við hann en samt ertu að spá í þessu. Ég myndi ekki fara að henda 5000 kalli í þennan síma nema það væri eitthvað í honum sem væri ekki í mínum og mér finndist ég ekki geta lifað án.
Það helsta sem ég sé er að 3410 er með einum fleiri leik og líka með WAP og Java þannig að þú getur sótt fleiri leiki í hann, þú getur búið til myndir og það er stærri símaskrá en þú getur ekki búið til hringitóna. Ef þér finnst þetta 5000 kall virði, þá skelltu þér á símann. Mér finnst þetta ekkert okurverð.
Jújú. Ég veit alveg hvað er betra við hann og hvað er ekki betra. Ég var bara að spá hvað aðrir myndu segja, hvað þeim finnst betra við hann og ekki betra við hann. En takk fyrir svarið:) Kv.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..