Djöfull er ég orðinn pirraður á þessum helvítis andskotast símkortum og fyrirtækjunum sem ég er hjá! Ég var með landssíma kort og það var allt í lagi. Svo notaði ég ekki gsm-símann minn í dáldinn tíma (gamall 5110 hlunkur) og þegar ég ætlaði svo að nota hann einhvern tímann þá bara var eitthvað að símkortinu og shit. Þeir teka náttúrulega enga ábyrgð á símkortum. Ég notaði semsagt ekki kortið í dáldinn tíma og þess vegna var það tekið út úr kerfinu.
Svo er ég með hérna Rautt kort. Ég hef ekki notað það í langann tíma (einhver ár) og svo ætlaði ég að skella því í nýja símann því að landssímakortið var ekki lengur til í kerfinu. Viti menn, kortið var líka úrellt. Ég hringdi í þjónustuver og mér var sagt að ég væri ekki heldur í kerfinu þar! Þeir höfðu skipt um kerfi eða e-ð og þá var mitt kort EKKI sett in þar af því að ég notaði það ekki í langan tíma!
Ég er farinn að hata þessi símafyrirtæki! Ég meina, maður kaupir símkort og ef maður notar það ekki í einhvern tíma er það bara tekið út úr kerfinu AÐ EILÍFU og maður getur aldrei aftur notað það! Þá þarf maður að fara að kaupa sér ENN ANNAÐ KORT!!! Til þess að geta notað þennan fína síma. Þeir kreista ALLT sem þeir geta útúr alþýðunni vegna þess að þeir geta það! Þeir gera allan fjandann svo maður þurfi að borga þeim meira svo að ÞEIR GRÆÐI!! Það mætti halda að allt snúist um peninga nú í dag. Fólk drepst og ættingjarnir krefjast skaðabóta, ég meina það, ef að ég dræpist myndi ég ekki vilja að dauði minn væri bara einhver helvítis féþúfa fyrir ættingja og vini.
Helvítis símafyrirtæki!!! Ég bölva ykkur í sand og ösku.
Hvað kostar annars símkort frá landssímanum? ENN ANNAÐ ANDSKOTANS SÍMKORTIÐ SEM ÉG NEYÐIST TIL ÞESS AÐ KAUPA!!!<br><br>wake my up before I kill myself
“Just because I´m paranoid it doesn´t mean that people aren´t still fallowing me”