Prófaðir þú þetta með krónuna? Virkar alltaf best fyrir mig. Ef þú ert sáttur við fyrstu niðurstöðuna sem krónan gefur, þá er það sá sem þig langaði í en ef þú vilt prófa að hafa 2 af 3 köstum þá langaði þig meira í hinn.
Annars veit ég að frændi minn keypti gemsa hjá Símanum og hann spurði hvort hann gæti skilað honum aftur og honum var sagt að ef hann skilaði í upprunalegum umbúðum innan ákveðins tíma, man ekki hvort það var vika, 10 dagar eða hvað, þá gat hann fengið endurgreitt. Hann gerði það og prófaði þannig símann í þennan tíma og fattaði að honum líkaði ekki við hann. Kannski ættir þú bara að prófa þetta. Taktu þann sem þú heldur að þig langi meira í og ef þér líkar ekki nógu vel við hann, skilaðu honum þá aftur og taktu hinn.
Það sem mér finnst skipta mestu máli með síma er að það sé lithium batterí, hvað það endist lengi, hvað hann er þungur og hvað hann er stór en kannski skiptir það ekki máli fyrir þig.