Þá er komið að Trivia 10.
Stigin fóru svona:
BillyTheWerewolf: 5 stig
Stigin standa þá svona:
Morgothal: 41 og 1/2 stig
BillyTheWerewolf: 29 stig
THT3000: 19 stig
Mendoza: 16 stig
Master Chief: 10 stig
RemusLupin: 9 og 1/2 stig
Lestrarhestur: 8 stig
DonFeiti: 5 stig
neutralmilkhotel: 5 stig
slani: 5 stig
Jolamadurinn: 3 stig
Parvati: 2 og 1/2
girl88: 2 stig
Donnie Darker: 1 og 1/2 stig
OfurGuffi: 1 stig
Svörin:
1. Hvað heitir nágrannabær Carvahall þar sem Roran fékk vinnu í myllu?
Þernisfurða
2. Hvaða eiginleikum er munnvatni dverga búið í Artemis Fowl?
Það harðnar og lýsir þegar það kemst í snertingu við andrúmsloft.
3. Hvað eru Hugrúnirnar í Abarat margar?
Þrjár.
4. Hvað heitir smartsvartálfurinn(hobgoblin) í Spiderwickbókunum?
Slefubelgur
5. Hvaða álfkonu hittir Leda fyrst í Sverðberanum?
Göþu
6. Hvert er verndardýr Nadíu Santos í bókunum eftir Isabelle Allende?
Örn
7. Hvað heita systkini Barneys í Over sea, under stone eftir Susan Cooper?
Jane og Simon
8. Af hvaða sígyptaætt er Costafkölskyldan?
Af Stefanski-ætt
9. Hvað heitir stjúpfaðir Katrionu Teresudóttur í samnefndum þríleik?
Cornelius
10. Hvernig vera er Skelmir Gottskálks í samnefndri bók?
Beinagrind
Nýju spurningarnar:
1. Hvað heitir dóttir Sloans í Eragon?
2. Nefnið tvö ríki nálægt Narníu.
3. Hver stal læsta teningnum í Artemis Fowl?
4. Hvaða eiginleika hafa nornafylgjur fram yfir venjulegar fylgjur í Myrkraefnaþríleiknum?
5. Hvað heitir lukkudrekinn í Sögunni Endalausu?
6. Nefnið 2 tegundir af varúlfum í The Dresden Files.
7. Af hvaða ættbálki var móðir Toraks?
8. Hvað heitir bærinn sem Tristran Thorne ólst upp í í Stardust?
9. Hvað heitir höfðingi dverganna í Spiderwick?
10. Spurt er um persónu í Stravaganza.
Þessi persóna kemur fyrst fram í annari bókinni og er karlkyns. Hann er ekki stravaganti, en er þó skyldur einum slíkum. Hann býr í Remóru, í tólftungi hrútsins.