Þá er komið að Triviu 6. Einungis einn tók þátt núna: Morgothal, sem fékk 5 stig.
Stigin standa þá svona:
Morgothal: 25 stig
Mendoza: 16 stig
THT3000: 15 og 1/2 stig
Master Chief: 10 stig
RemusLupin: 9 og 1/2 stig
Lestrarhestur: 8 stig
Werewolf: 8 stig
DonFeiti 5 stig
neutralmilkhotel: 5 stig
slani 5 stig
Jolamadurinn: 3 stig
Parvati: 2 og 1/2
Donnie Darker: 1 og 1/2 stig
OfurGuffi: 1 stig
Svörin eru:
1. Hvað heitir eyja tíundu stundar í Abarat?
Spakey (eða Spake)
2. Hvað heita börn Mellúsínu Tonerre í Dóttur Ávítarans?
Davín, Dína og Mellí
3. Hvað hét faðir Örju í Eragon?
Evandar
4. Hverjir þrír voru sendir sem hólmgönguvottar með Pétri í einvígi hans gegn Mírasi í Kaspían Konungsson?
Risinn Veðurviti, kentárinn Gjáþytur og einn bjarnanna.
5. Hvað hétu grikkálfatvíburarnir sem hjálpuðu Ópal Kóbó að flýja frá heilsuhæli J. Argons í Artemis Fowl?
Mervall og Descant Brill (Merv & Scant)
6. Í hvernig líki er fylgja skólameistarans í Jórdanskóla í Gyllta áttavitanum?
Í krákulíki
7. Hver er gullna reglan við tamningu dreka samkvæmt Kjaft-Aski prófessor í Að temja drekann sinn?
Gullna reglan er að öskra á drekann (því hærra því betra).
8. Hvað heitir dóttir Arthurs Spiderwick í Spiderwicksögunum?
Lucinda Spiderwick
9. Á hvaða eyju fæddist Ged, aðalpersónan í A Wizard of Earthsea?
Á eyjunni Gont.
10. Hvaða nafn gaf Bastían Barnslegu Keisaraynjunni í Sögunni endalausu?
Mánabarn
Og nýju spurningarnar:
1. Hvaða borgum í raunveruleikanum samsvara Talísku borgirnar Rómúla, Remóra og Bellezza í Stravaganza?
2. Hvaða ættbálki tilheyrir Renn í Úlfabróður?
3. Hverju safnar George í The Song of the Lioness?
4. Hvaða tegund af steini er steinninn “Power of Stormhold” í Stardust?
5. Hvaða höfuðskepnu er andinn (spirit) Bob tengdur í The Dresden Files (jörð, vatn eldur, loft)?
6. Úr hvaða hluta af dreka eru spábein Angelu í Eragon?
7. Hvað heitir fylgja Asríels lávarðar í Myrkraefnaþríleiknum?
8. Hvað heitir guð Kalormena í Narníu?
9. Nefnið 4 tegundir hulduvera úr Artemis Fowl?
10. Fyrir hverju hafa Baudelaire systkinin ofnæmi?